Já var að kíkja hingað inn og það eru svona 100 ár síðan ég skrifaði já eða svona næstum því allavega. Veit bara aldrei almennilega hvað ég get skrifað inn. Efast um að einhverjum langi að heyra að ég hafi náð markmiðinu mínu með þyngdina OG finnist ég ennþá vera feitabolla þrátt fyrir það og neyðist til að léttast meira og ég nenni því ekki neitt. Úff þvílík leti nenni ekki einu sinni að líta betur út. Gæti líka verið bundið við daginn í dag, er heima lasin með magapest og líður mest eins og ég þurfi að gubba ekki skemmtilegt sko. Þannig að feitan og ljótan bönkuðu upp á um daginn og sitja sem fastast, veit ekki alveg hvernig ég á að koma þeim út. Ætla að skella mér í sturtu þegar ég er búina ð hringja í heilsuverndina, já af því að ef maður er veikur hjá 10-11 er nauðsynlegt að hringja í yfirmann og líka suður þar sem veikindin eru skráð. Gríðarlega gaman að reyna að muna eftir því enda gleymi ég því svona í annað hvort skipti verð sem betur fer ekkert rosalega oft veik, oftar að krílið mitt litla verði lasið. Við Stína skruppum aðeins út á föstudagskvöldið og leiðin lá í sjallan á bloodgroup og haffa haff. Nenntum síðan ekki að standa í mílulangri röð við dyrnar og eitthvað vesen þannig að við skelltum okkur bara á kaffi ak. Halló hver fær að sjá um tónlistina ef ég má spyrja? sjitt þegar það er verið að spila HLH flokkinn (eða eitthvað álíka gamalt) og búkollulagið með (ladda) þá er augljóslega ekki allt í lagi! Enda dóum við næstum úr hlátri við fyrstu svona ömurlegu lögin en svo var þetta svona já hérna eigum við kannski að kíkja eitthvað annað , eða já bara kannski borða eitthvað? En ég fór allavega og keypti ný föt fyrir kvöldið og á þau enn hihi. Æðisleg hvít stígvél (mamma og pabbi gáfu mér þau eiginlega í ammlisgjöf notaði amk gjafabréfið frá þeim ELSKA gjafabréf(hint fyrir næstu jól handa öllum)) og svo svona síðan bol/stuttan kjól eftir hvernig á það er litið geggjaður vil leggins enda var ég þvílík gella sko .... Komast að því að ég kem ekki til með að versla í centró aftur! Ömurleg þjónusta sko. Þannig er að ég fékk bol frá Stínu í afmælisgjöf. Rosaflottan síðan með teyju neðst og rúllukraga. Ég mátaði hann og eitthvað. Tók svo eftir því að hann var svona eins og pínu skítugur, bæði smá meik í kraganum og svona eins og klístur framan á. Ekkert alvarleg samt þannig að ég henti honum bara í þvottavélina( á réttu prógrammi) og set hann svo bara inn í skáp. Ætlaði svo að nota hann í foreldrakaffinu í síðustu viku en þegar ég var komin í hann þá var hann búin aðminnka um rúmlega 1 stærð!!!!!! er sko pinkulítill, gæti verið meira að segja of lítill á Ingibjörgu. Og bletturinn var ennþá í honum. Skrapp svo bara niðrí centro og gerði nú ekki ráð fyrir að það myndi verða vandamál að skipta enda auglljós galli að efnið skreppi svona rosalega mikið saman. Þá fékk ég sko þá verstu þjónusut sem um getur. Stelpurnar 2 sem voru að afgreiða voru rosa ljúfar og næs en helvítis kellingar beygjal (Vilborg sem á centro) var sko bara þvílíkt dónaleg og vægast sagt ekki manneskja sem ætti að vinna nálægt fólki. Hellti sér yfir mig að ég ætti nú ekki að kaupa svona lítil föt og hefði nú greynilega ekki þvegið hann á réttum hita og bara já verulega ömurleg. Ég varð ekkert smá reið hringdi í neytendasamtökin og konan þar er að vinna í málinu mínu. Er búin að fara að bera hann saman við annan eins bol og sá greinilega hvað hann minnkaði mikið en herfan er í útlöndulm einmitt núna en verður farið betur í þetta á mánudaginn geðveikt stolt af mér fyrir að gefast ekki upp enda ekkert lítið ómerkileg manneskja þarna á ferð...
17. apríl 2008 klukkan 09:47
Steinunn M Ţórólfsdóttir 3 athugasemdir
Síðan ég horfði á þáttinn The truth about size zero hef ég annað slagið verið að pæla í hversu miklar útlitskröfur eru settar á konur/stelpur í dag. Óeðliega miklar, en það sem meira er að ef við tækjum ekki þátt í þessu væri varla þessi rosa mjónu standard núna er það nokkuð? Stærð 0 (usa) er auðvitað bara pínku ponsu lítil, t.d sú sem Victoria Beckham og fleiri súper mjóar konur í Hollywood eru í. Það sem mér fannst í rauninni best við þennan þátt þar sem að mjó og flott kona vildi komast í þessa stærð á mánuði! var að sjá hversu rosalega miklar ófgar þetta eru í rauninni. Að borða 800 kaloríur á dag er auðvitað bara fáránlega lítið, tala nú ekki um hvað fæðið var rosalega einhæft auk strangra líkamsræktar 24/7! Fannst sérstaklega fínt að heyra frá lækninum lýsa yfir hættunni á þessu, hvaða aukaverkanir eru osfrv. Efast um að þessi þáttur hafi fengið margar stelpur til að hugsa ok verð þá bara þung, en það sem sat eftir hjá mér var eiginlega það síðasta sem hún sagði um hvað væri auðvelt að detta í anorexíu/bulimiu þegar hún væri að fyljga þessu, þar sem líkaminn vendist svona litlu. Og reyndar vá hvað ég varð ekki sátt við þjálfarann hennar sem átti ekki orð yfir hvað hún leyt vel út þegar hún var veikluleg, þreytt, svöng við alveg endann á mánuðinum þá var hún sko næstum fullkomin ...bara eftir að losna við smá kíló ....þvílíkt bull En því miður tökum við flestar þátt í þessu. Hver kannast ekki við að þurfa að missa bara örfá kíló í viðbót þá verði allt betra. Allt betra hvað? hvað er það sem við erum raunverulega að sækjast eftir? Ég stend sjáfla mig að því að núna í ja hvað 60 kg að hugsa já hvað svo bara 5 kg í viðbót og þá er þetta fínt, þá verð ég glöð. En verður það nóg? Vonandi en maður veit þó aldrei. Þetta læðist alltaf að mér annað slagið, jafnvel þó að það sé búið að segja við mig að nú meigi ég ekki grennast mikið meira, en það sem ég horfi á er litla bumban mín, myndi sjálfsagt vera nóg að gera magaæfingar til að hún hverfi.... En þessi fullkomnunarárátta er rosalega, ég er mjög fegin að hugsa bara svona einstaka sinnum, flesta daga er ég bara mjög sátt við sjálfa mig sko . En þetta litar samt alltaf svo mikið, flestar könnustm við sem eigum/barn börn við að finnst við eiga að labba út af fæðingardeildinni grennri en við vorum áður en við urðum óléttar. Þetta er auðvitað mjög óhelibrigt. Líkaminn var 9 mán að breytast og þarf allavega þann tíma til að breytast til baka. Og vá verður nú oftast ekkert eins. Sumar fá stærri mjaðimr eða brjóst eða minni bjóst eða bara hvað sem er. Slit og fleira. En það sem maður sér í blöðum og sjónvarpi eru nýbakaðar mæður með ungbörn, ótrúlega fitt og flottar. Gleymum samt að spá í að þær hafa endalaust fjármagn til að nota einkaþjálfara, kokka, næringarfræðinga, barnfóstrur osfrv til að geta komið sér í þessa eftirsóknarverðru stærð aftur..... ég geri mér fyllilega grein fyrir því að ég á aldrei eftir að nenna að komast í hana, er einfaldlega of löt .... en já veit ekki alveg hvort þið skiljið eitthvað í þessu en það er sama þetta er bara eitthvað sem ég er búin að vera að pæla mikið í svona yfirjólin og svona hhehehe besti tíminn til þess. Annars er mín elskulega dóttir að kalla á mig svo það er nú best að sinna henna svolítið :)
11. janúar 2008 klukkan 10:54
Steinunn M Ţórólfsdóttir Engin athugasemd
þá eru jólin og áramótin búin og þau voru svona bara lala ágæt, fékk fullt af flottum og skemmtilegum gjöfum en því miður lagðist öll fjölskyldan í gubbupest frá aðfangadagskvöldi fram á gamlársdag, sem betur fer ekki öll í einu samt, svo að það var nú ekki borðað eins mikið og haft það eins gott og ég gerði ráð fyrir. En ljósi punkturinn í því er (eins og fólk hefur nú verið duglegt að minna mig á ) er að þá fitnar maður amk ekki á meðan. Hefði nú samt viljað sleppa pestinni bara:) En mér tókst amk að losna við einhver 4- 5 kg í desember svo að ég er nú ekkert endilega að kvarta, það munar um það að vera ekki hrifin af smákökum og borða súkkulaði MJÖG í hófi útaf fjandans ofnæmi. Enda finn ég hvað ég er skárri af gigtinni eftir því sem ég léttist, nema hvað ég er alltaf þreytt sem ég tengi alveg beint við hana. Ég er ekki að grínast stundum á ég bara erfitt með að hreyfa mig ég er svo þreytt í öllum vöðvum og festingum og beinum og alls staðar:S ekki beint það skemmtilegasta, ég vil samt ekki taka lyfin sem hjálpa mér að sofa því að þá get ég ekkert vaknað allan daginn. Alveg frábært sko. Og læknirinn vill ekkert ge3ra meira en gefa mér endalausar pillur sem laga ekki sjitt fresta bara verkjunum og jú eyðileggja nýrun sem væri auðvitað súper gott eða þannig. En annars legst árið bara vel í mig, held að það verði bara ágætt:) verður sjálfsagt bara svipað og þetta en kannski eitthvað spennandi sko hehe kemur í ljós bara en já er svona að vinna þannig að það er kannski best að snúa sér að því
03. janúar 2008 klukkan 18:35
Steinunn M Ţórólfsdóttir Engin athugasemd
Ég er aftur bara í vinnunni minna og ´nk ekkert að gerast í að bjóða tv svo að ég er að blogga aftur, tek svona tarnir sko, alltaf þegar allir eru löngu búinir að gefast upp á mér af því að ég nenni engum færslum þá nei detta ekki bara inn alveg hellingur hehe Mér skilst að það sé stefnan að Hilmar haldi upp á afmællið sitt um helgina svo að það er alltaf sp í hverju maður á að vera;) auðvitað farin að pæla í því á fimmtudegi úps jen það er nú það mikilvægasta hihi ég þarf að minnsta kosti ekki að redda mér einhverju aðdrekka ísskápurinn er fullur og rúmlega það. Stundum veit maður of mikið um fólk, það er sp hvort maður vill vita að það viljí prófa að fara í latex föt bara svona til að finna hvernig það er svona af því að viðkomanid hefur jú prófað sokkabuxur það sé svo gaman (wtf) ! ;) en sumir eru meira afbrigðilegir en aðrir Ég fæ alltaf gríðarlega hugmyndir af áhugaverður færslum í vinnunni (10-11) en svo fyrir framan tölvuna man ekki sjitt verulega pirrandi. Annars á ég við svo gríðarlegt lúxusvandamál að stríða að það er rosalegt!!! Það er nefnilega málið að ég er komin í sömu þyngd og áður en ég varð ólétt og það er awsome ENNNNN hér er nefnilega vandamálið að ekki löngu áður en ég varð ólétt var ég búin að léttast slatta mikið en ekki kaupa mér neitt af fötum að ráði ... svo keypti ég sára lítið á meðan ég var ólétt/feit þannig að núna á ég helling af fötum (sérstaklega gallabuxum) sem eru ekkert rosalega flottar á mér (samt flottar) af því að þær eru svo stórar :( skæl mig langar í flottar buxur það eru nú reyndar að koma jól hint hint handa þeim sem langar að gefa mér jólagjöf ;) hihi merkilegt að ég set samt alltaf sömu hlutina á jólagjafalistann minn og fæ nú yfirleitt eitthvað annað ....eheh samt yfirleitt eitthvað sem mér langar alveg í fattaði það bara ekki ;) mér vantar samt fleiri veggi fyrir myndir það er svo mikið af gluggum hjá mér :/ en já nóg af bulli í bili en jú eitt mont í viðbót og ekki megrunar - ég (við ókey hilmar hjáplaði pínu) er búin að kaupa/búa til allar jólagjafirnar og á bara nokkur kort eftir (klappa sjáflri mér á bakið) á bara eftir að pakka inn
06. desember 2007 klukkan 20:31
Steinunn M Ţórólfsdóttir Engin athugasemd
....eða já svona næstum amk. Ég var reyndar um daginn búin að skrifa helling inn það var ekki að vistast inn svo ég fór bara í ótrúlega fýlu :/ eða já svo er ég bara ekki búin að hafa tíma til að gera neitt nema vinna og vera á námskeiði og eitthvað. En svo var hún Anna mín eitthvað að kvarta yfir að fá ekki neitt slúður að norðan svo ég verð þá eitthvað að bæta úr því :) Annars er vangefið lítið að frétta.Ég er reyndar úber kát af því að vigtin er alveg að gera sig í að færast neðar og neðar:) Jíbbý gríðarlega glöð með það sko. Á bara ekki eftir nema hvað, kannski 2 kíló í mína kjörþynd eð akso þá sem ég vil vera í , væri alveg til í að fara neðar en hvað um það :) hihi en já ég verð að drífa mig í mat, bæti við á eftir :) Tja nú bilaði allt dótið í vinnunni svo að ég er bara að hanga í vinnunni að gera ekkert ekki beint spennandi gæti verið heima að föndra jólagjafir hehe heyrirðu það Kristín :) blikk blikk En já hvað er málið með stjörnuspána mína á mbl.is í dag!!!!! eitthvað um að ég sé skrýtnari en aðirir!!!Halló höfum það alveg á hreinu að ég er ekkert skrýtin :( skæl ég fann buxur sem mig langar geðveikt í hehe hint hint til Hilmars :) oj hey datt í lag svo ég er farin að vinna
04. desember 2007 klukkan 18:51
Steinunn M Ţórólfsdóttir Engin athugasemd
Vá hvað það er eitt sem ég þoli ekki þegar ég er að keyra og það er fólk sem að keyrir á sko 20 þar sem er 50 km hámarkshraði!! Þá er ég að tala um í bestu mögulegu aðstæðum eins og er búið að vera undarnfarið engin hálka og ekki neitt að, nei endilega keyrum eins hægt að mögulegt er:( Þetta er sérstaklega áberndi þar sem ég á heima - því að þar er svo mikið af gömlu fólki sem að svínar fyrir mann (sér sjálfsagt ekkert hvert það er að fara) og lúsast síðan áfram á 20 AAARG það er svo óþolandi! Ef fólk getur ekki lengur fylgt umferðarhraða á það náttúrlega ekkert að vera að keyra, það eru ókeypis strætóar hérna sem það getur þá líklegast notað!! Þetta pirrar mest mest mest af öllu í heiminum eða já svona næstum því amk hehe Annars er ég nokkuð róleg þegar ég er að keyra blikk blikk hehe Ógeðslega eru Íslendingar samt alltaf fyndnir, það eru bara allir að missa sig af því að það var einhver dótabúið að opna biðraðir fyrir utan og eitthvað :/ kannski er ég bara svona óíslensk í mér ég nenni aldrei á útsölur eða eitthvað svona fyrstu dagana (ef ég þá nenni yfirleitt eitthvað) finn hvort sem er ekkert þegar það eru milljón klikkaðar gellur sem hlaupa yfir mann liggur við. Nema jú kannski ef það er útsala og ég þarf hvort sem er í viðkomandi búð en það er annað mál sko ehe ég er bar svo ekki að nenna svoleiðis dóti . Vá gleraugun mín brotnuðu um daginn vei þannig að núna þarf ég að fara og gjöra svo vel og finna pening fyrir eins og einu svoleiðis aldeilis frábært einmitt það sem mig vantaði eða þannig. Ég bara er ekki að finna neinar umgjarði sem að mér finnst virkilega flottar, mig langar ekki í einhverjar rauðar eða bleikar eða með steinum og drasli það er einhvern vegin ekkert ég sko ... Og já vá ég er svo ótrúlega pirruð ég keypti mér buxur fyrir dálitlu löngu síðan sem ég er síðan kannski búin að fara í svona 3var!! Mér finnst þær mjög flottar auðvitað annars hefði ég varla keypt þær dö en svo þegar ég er komin í þær finnst mér þær bara ekki fara mér finnst ég bara asnaleg í þeim og fer beint úr þeim aftur:s þvílíkt pirrandi eru svona blend buxur með stórum vösum aftan á og svona vítt snið rosa flottar en það er bara eitthvað við þær sem mér líkar ekki á mér...er einhverju sem vantar buxur .... hhe jess loksins frílhelgi um helgina er sko búin að vinna milljon og einn dag í röð án þess að fá frí, var reyndar heima með lasna litla íris í dag gær og fyrrradag en það telst nú ekki sem frí amk finnst mér það ekkert spes gaman sko :s en já á að heita að ég sé í vinnunni það vill bara enginn svara mér leitar fólks
18. október 2007 klukkan 20:43
Steinunn M Ţórólfsdóttir Engin athugasemd
Síðast var ég einmitt alveg á leiðinni í klippingu bara svona rétt til að snyrta hárið... fengum síðan smá geðveikist kast hehe og núna á ég ekkert hár !!!!!! hihi eða svona því sem næst sko . Er semsagt með ALVEG stutt að aftan en síðan síðara í hliðunum með svona þungan topp og frekar síðan. Hljómar kannksi ekkert voðalega vel en kemur samt merkielga vel út, amk finnst mér það veit nú samt ekki með aðra, enda svolítil viðbrigði að fara úr alveg síðu í alveg stutt:) sem var nú kannski ekki ætlunin en vá þetta er hvort sem er bara hár og vex jú víst alltaf aftur. Svo er víst vinna um helgina - ógeðslega er ég ekki að nenna þvi :s en verð nú víst samt. Enda er ég svo sem búin að vera heima í nokkra daga núna með lasið og vesælt Íris, einstaklega skemmtilegt það:/ Kannski fær hún samt að skreppa aðeins í sveitina um helgina af því að Hilmar þarf víst líka að vinna. ÆI þá sakna ég þess alltaf svo mikið hehe alveg nokkra tíma af því að ég er mest í vinnunni sko. Svo var ég víst búin að lofa mér í vinnu helgina eftir en ætla í 10 -11 miðbæ á morgun og tala við stelpu gæruna og neyða hana tila ð vinna helgina eftir fyrir mig ef ekki þá bara sorrý þá er ég ekki að fara að vinna fyrir þig ef þú getur aldrei unnið á móti heimska belja :( Hún nefnilega hringdi í mig og bað mig að vinna sagðist sko alveg geta unnið bara allar helgar nema ekki þessa af því áð hún ætti afmæli og eitthvað voða mál. Svo henta bara engar helgar til að vinna og ég er ekki að fara að vinna allar helgar í þessum mánuði þannig að bara sorrý þá verð ég ótrúlega leiðinleg og læt sigga breyta þessu aftur hehe yough vinnan aftur
04. október 2007 klukkan 20:47
Steinunn M Ţórólfsdóttir Engin athugasemd
Vá hvað ég er ekki að fíla þegar tölvukerfið í vinnunni krassar:( Komst að því kl 8 í morgun í miðri afgreiðslu að þetta var bara ekkert að gera sig - sem þýðir að það var ekki hægt að borga með korti ....þið getið jú rétt ýmindað ykkur hvað fólk var ánægt með það. Þurfti reyndar ekki að bíða rosalega lengi eftir að fá gsm posa en kræææst my lord hvað það djöfuls drasl er HÆÆÆÆGT fólk var ekki mikið ánægðara með það sko :/ annars er vinnan mín svo sem ágæt, ekkert hægt að kvarta, nema kannski yfir dónalega fólki sem gargar á mig útaf einhverjum sígarettum en það er kannski annað mál urr er heldur ekki neitt endiega að fíla það í ræmur... Af hverju langar manni alltaf í nammi (og þá súkkulaði mest af öllu) rétt áður en maður byrjar á túr? það er óþolandi, þegar mér langar kannski ekki í nammi allan mánuðinn, svo eru 3 pillur eftir af skammtinum og bang ég get ekki hugsað um neitt nema nammi og eitthvað fitandi og djúsi, ég borðaði speltpasta með túnfisk og gulrótum í kvöldmatinn og það var sko ekkert að gera neitt fyrir græðgina get ég sagt ykkur hrumpf endar örugglega með því að ég fæ mér smá nammi, sem gerir nú ekki mikið fyrir sálina, enda líður mér þá eins og ég sé gráðugt svín og hafi fitnað um milljón skrilljón kíló af öllu namminu og ekki er að betra. Get hreinlega ekki unnið í þessu. Sérstaklega þar sem að ég er alltaf einhverjum 3 kílómum þyngri þegar ég er á túr (án þess að éta nammið) sem er alveg merkilegt, + eitthvað feitari magi og eitthvað , endalaust leiðinlegt. En ég fæ nú allavega fallegt hár á eftir, ég ætla nefnilega að kíkja í heimsókn til Stínu og fá smá snyrtingu í hárið, amk toppinn hehe enda er hann orðin óþarflega síður fyrir sveipina mína, þar sem að hann skiptir sér í miðju og það er bara ekkert fallegt sko, er andalaust mikið bara með hárband og eitthvað, ég er ekki að fara að vera með greitt í píku, það er eiginlega jafn halló og möllett hihi ég er að vinna sko eini tíminn sem ég hef til að blogga, eða þegar ég nenni því öllu heldur, er jú frekar löt:) best einmitt að halda því áfram
27. september 2007 klukkan 20:50
Steinunn M Ţórólfsdóttir Engin athugasemd
Ég næstum dó í vinnunni í gær. Það kom nefnilega HUNDUR röltandi inn í búðina,og við erum ekki að tala um neitt tjúakvikindi sko, nei helddur full size hundur á stærð við hest!!!!! Ég bara fraus, mér er nú ekkert vel við hunda en vá shefferhundar (svona lögregluhundurinn rex kvikindi) eru verri en nokkur önnur. Við erum að tala um að ég faldi mig bak við salatbarinn og svo var öskrað... eða þannig það kom nú ekki neitt hátt hljóð. Svo reyndar fór Siggi út með hundinn svo ég þurfti ekki að læsa mig inná klósetti:/ Þettavar sko bara ekki minn dagur úff nei. Það byrjaði á að það sprakk á bílnum mínum þegar ég var á leiðinni í vinnuna frá því að skutla Írisi á leikskólann! Þannig að ég þurfti auðvitað að byrja á hringja í Hilmar og biðja hann að koma og bjarga mér. Þannig aðhann skipti auðvitað um dekkið mitt ... þanng að ég varð of sein í vinnuna. Svo kom hundurin og þetta var bara allt eitthvað frekar ömurlegur dagur í gær. Þetta er nú samt búið að vera aðeins skárra í dag en samt æi ég var eitthvað ekki í stuði í vinnunni. Svo er ég að herða mig upp í að hringja í bakkahlíð og breyta sunnudagsvakinni og kellingiin verður svoooo ekki ánægð með það, hey hvað getur hún gert? rekið mig? well endilega mín vegna þá losna ég við að vinna 2fallt um helgina;) hihi en hún vill nú varla missa mig enda er ég æðis ;) Ég á litla ræstikkonu, Íris er nefnilega alveg óð í að hjálpa mér að þrífa. Hún skemmti sér geðveikt áðan, ég lét hana fá blauta tusku (bleika auðvitað) og og sagði henni að þurrka af, sem henni fannst svona þvílílkt gaman, svo er hún líka alltaf með litla sópinn sinna að sópa og auðvitað fá svamp og smá vatn til að skúra eins og Ökkbukka(Öskubuska). Þessar 3 Öskubuskumyndir eru greinilega að borga sig hehe
04. september 2007 klukkan 20:32
Steinunn M Ţórólfsdóttir Engin athugasemd
já nú eða svona næstum því. Ég er sumsé byrjuð að vinna í 10-11 og verð að vinna þar í vetur. Ég held að það verði allt í lagi, amk svona venjuleg búða vinna, sem mér finnst alltí lagi að gera. Svo hentar vinnu tíminn mér ágætlega, 8 - 13 og svo önnur hver helgi.Það er samt geðveikt mikið að gera hjá mér núna eitthvað í þrem vinnum þangað til 11 sept þannig að ég er bara úff hef varla tíma til að sofa :/ en það er hægt að gera það bara í vetur hehe Svo er Íris orðin rosa dugleg leikskóla stelpa og bara þvílíkt glöð spjallar heilmikið og þvílíkt ánægð. Æi vá ég er eitthvað svo hugmyndlaus núna, væri geggjað til í að setjast bara niður með eitthvað gott kaffi og spjall og eitthvað ........ einhver sem býður sig fram? hehe er búin að vinna kl 22 ef einhverjum öðrum leiðist.Annars er ég búin að vera ótrúolega léleg við að heimsækja fólk undarnfarið - bara geðveikt þreytt og ómöguleg eitthvað. Íris lasin og svoleiðis þannig að ég er búin að vera bara að hanga heima þó að ég nenni því samt ekkert. hehe er að vinna (kemur á óvart - í mínlum milljón vinnum) og er gersamlega hugmyndalaus. var með ótrúlega gott blogg í hausnum áðan en þá hafði ég ekki tíma til að skrifa og og núna man ég ekkert :(
30. ágúst 2007 klukkan 19:43
Steinunn M Ţórólfsdóttir 1 athugasemd